Firring ehf. Móhella 4d
221 Hafnarfjörður
s: 565-6597; 895-6594
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Fjarlægi geitungabú. Er með sér hannað efni til að eyða holugeitungum þar sem ekki næst i búið sjálft. Ekkert þarf að rífa.

Kakkalakkar. Ekkert eitur. Sér útbúið efni. 100% árangur.


Smelltu á takkann hér fyrir neðan til að lesa allt um skordýr.

Hefðbundinn undirbúningur fyrir skordýraeitrun er að mörgu leiti sá sami fyrir flestar þær skordýrategundir sem við höfum á Íslandi.

Fyrst og fremst þarf að þrífa gólf og alla neðri skápa íbúðarinnar. Taka þarf barnadót og lausamuni af gólfum. Færa hluti ,eftir því sem hægt er frá veggjum (20-30 cm).

Stórar mublur, bókaskápar og þvílíkt eru yfirleitt hannaðar þannig að hægt er að komast undir eða á bakvið þær. Bora þarf í sökkla til þess að koma eitrinu inn í lokuð rými (meindýraeyðir ) Þetta tel ég vera mjög mikilvægt.

Skordýraeitrið sem við notum á Íslandi heitir Deltamost og er búið til úr plöntueitri sem er lagað til af efnafræðingum og gert langvirkt, virkni þrír-fjórir mánuðir. Þetta er nauðsynlegt þar sem það geta liðið þrjár til sex vikur frá því að dýrin verpa þar til nýr einstaklingur skríður úr eggi. Efnið er hvítt, en með réttri blöndun er það svo til litar og lyktar laust.

Efninu er blandað í vatn og síðan úðað með litlum þrýstingi með fram veggjum og í raun látið leka milli lista og veggjar. Síðan þarf að úða inn í sökkla.

Eftir eitrun þarf að ríma húsnæðið í þrjá – fjóra tíma til þess að efnið fái að þorna í friði. Deltamost er hannað þannig að það virkar aðeins á dýr með kalt blóð ( þ.m.t. fiska, eðlur, snáka ) en eitur er alltaf eitur og við uppgufun efnis myndast alltaf einhver eimur sem getur valdið sviða á húð og alls ekki hollur öndunarfærum.Mikilvægt er að þeir fletir sem úðaðir eru séu ekki skúraðir eftir eitrum þar sem eitrið máist smámsaman í burtu með vatni og sápu, auk þess að sólarljós brýtur það niður.

Það er í lagi að moppa með þurrum klút og að sjálfsögðu að ryksuga, sem tekur bæði egg og skordýr. Skordýr anda með líkamanum og þegar þau skríða yfir úðaða fleti taka þau eitrið inn með öndun. Eitrið virkar á taugakerfið og lamar þau.

 

Firring ehf | Móhella 4d | 221 Hafnarfjörður | s: 565-65-97; 895-65-94
Fyrirtækið | Þjónusta og nýungar | Vörur | Skordýr | Spendýr | Fuglar | Nagdýr | Criopest - eiturfrí skordýraeyðing | Hafa samband

Hannað af "Ice Studio"